Jolly

Um Jolly

Veðurspá fyrir Egilsstaði sem ber saman spár frá mörgum veðurlíkönum og leiðréttir þær út frá því sem raunverulega mælist hér.

Af hverju?

Á Egilsstöðum getur munað miklu á því sem veðurspárnar segja og því sem gerist í raun. Ein spá segir logn og sól, önnur rigningu, og stundum hafa þær allar rangt fyrir sér. Mig langaði að vita hver þeirra hefði oftast rétt fyrir sér, og hvort hægt væri að gera betur með því að láta þær vinna saman.

Þannig varð Jolly til: lítið áhugaverkefni sem byrjaði á því að bera spárnar saman við mælingar og hefur síðan lært af hverri einustu klukkustund.

Hvernig virkar þetta?

Á klukkutíma fresti sækir Jolly nýjustu spár frá níu veðurlíkönum og ber þær saman við mælingar Veðurstofunnar á Egilsstaðaflugvelli. Hvert líkan fær vægi eftir því hve vel það hefur staðið sig undanfarið. Síðan leiðréttir Jolly þekktar skekkjur: til dæmis að líkönin spá of mikilli úrkomu í suðaustanátt (regnskuggi yfir Héraði) og of hlýju á kyrrum, heiðskírum nóttum. Fyrstu klukkustundirnar er spáin líka færð að því sem stöðin mælir akkúrat núna.

Líkönin og veikleikar þeirra

vedur.isVeðurstofa Íslands
Sterk í hita, enda gerð fyrir Ísland. Veikari í vindátt og vindstyrk, og skýjahulan er aðeins gróf.
yr.noMET Norway
Gott í vindstyrk. Á það til að spá of hlýju þegar kólnar í kyrru veðri.
ECMWFEvrópska reiknimiðstöðin
Eitt besta hnattlíkan heims, en vanmetur vindinn hér um rúman metra á sekúndu.
DMI og KNMIDanska og hollenska veðurstofan
Fínupplausn yfir Íslandi, en spá of hvössum vindi og kviðum á Egilsstöðum.
ICONÞýska veðurstofan
Traust í vindi og kviðum. Í meðallagi í öðru.
UKMOBreska veðurstofan
Eitt það besta í kviðum. Spáir oft aðeins of litlum vindi.
Météo-FranceFranska veðurstofan
Gott í vindi og kviðum, en það vantar stundum klukkustundir í gögnin.
GFSBandaríska veðurstofan
Grófasta líkanið. Gagnlegt í samanburðinn en sjaldan best eitt og sér.

Öll líkönin eiga það sameiginlegt að spá of mikilli úrkomu í suðaustanátt og gera lítið úr kuldanum á kyrrum vetrarnóttum. Það eru einmitt hlutirnir sem Jolly leiðréttir.

Hvað sérðu annars staðar?

Flestir fá veðrið frá RÚV, sem notar spá Veðurstofunnar, eða úr veðurappinu í símanum. iPhone og Android nota hnattlíkön (NOAA, ECMWF, þýsku og frönsku veðurstofurnar o.fl.) en ekkert íslenskt líkan. Svona hefur hitaspáin næstu klukkustundir staðist hér á Egilsstöðum:

RÚV / vedur.is
–
meðalskekkja
Símaspá
–
meðalskekkja*
Jolly
–
meðalskekkja

* Ekki er hægt að sækja spár símaappanna beint, svo hér er notað meðaltal hnattlíkananna sem þau byggja á. Það er nálgun.

Hverju hefur þetta skilað?

Síðustu vikur hefur Jolly verið nákvæmari en bæði yr.no og vedur.is í flestum samanburðum, mest næstu klukkustundirnar.

–skekkja í hita næstu klst
–minni skekkja í vindátt en yr.no
–minni skekkja í skýjahulu næstu klst

Tölurnar eru reiknaðar sjálfkrafa á klukkutíma fresti úr mælingum síðustu 14 daga. Samanburð dag fyrir dag má sjá á síðunni „Nánari upplýsingar“.

Markmiðið er áfram einfalt: að búa til bestu mögulegu veðurspá fyrir Egilsstaði. Jolly er ekki rekið í hagnaðarskyni, það eru engar auglýsingar og engum persónuupplýsingum er safnað. Þetta er gert til gamans.